Fyrsta vikan búin í skólanum!
Þetta var helvíti fínt, ég er alveg að fíla mig í þessu þó að þetta hafi kostað mig dágóðan pening. Skólagjald, efniskostnaður, bækur og áhöld kostuðu samtals um 90 þúsund krónur en ég sé ekkert eftir þessu því þetta er helvíti fínt. Búin að kynnast fullt af liði í bekknum t.d. Írísi, Lovísu, Stefaníu, Rachel og fleiri. Við erum 12 í bekknum, hress og skemmtilegur hópur. Mjög góða stundaskrá finnst mér, byrja ekki fyrr en 12:35 tvisvar í viku og eiginlega ekkert af götum og veseni. Svo er ég að vinna eins og brjálæðingur um helgina, er dagvakt laugardag og sunnudag.
Við Jobbi ákvöðum að vera geðveikt dugleg í dag, löbbuðum og skelltum okkur í sund, fengum okkur svo pulsu eftir á. Núna er ég ein heima, að leika mér í tölvunni. Jobbi á fundi með yfirmönnunum á Grand Hotel, opinn bar og hvað eina!
Annars fengum við loksins World of Warcraft, djöfulsins snilldarleikur. Ógeðslega töff og geðveikt fjölbreyttur. Ég er Yuna, priest sem sérhæfir sig í skinning & leathering. Jobbi er Kaoz, mage (galdramaður) sem sérhæfir sig í herbs. Algjör snilld.
Jæja best að fara í WOW, ójá! Svo er Idol í kvöld! Hver haldiði að þetti út?