Thursday, January 06, 2005

Birta og Máni liggja sitthvorum megin við lyklaborðið, leitandi eftir athygli. Mamma upptekin, var að borga reikning og lesa e-mailin. Annars er allt gott að frétta. Ég byrja í skólanum á föstudaginn og hlakka svolítið til að fá að byrja og skella mér í smá lestur! Guð hvað ég er sorgleg. Það er alveg ótrúlegt hvað það er dýrt að lifa í þessu landi, það er þetta og þetta sem þarf að borga og áður en maður veit af, eru öll launin horfin. Alveg ótrúlegt. Ég er bara fegin að ég þarf ekki að kaupa margar bækur annars væri ég í vandræðum! Hmmm, þá man ég það... sækja símann til Tengdó! Alla vega, já skólinn er að byrja. Svo bíður maður spenntur eftir WOW. Jobbi ákvað að sýna mér aðeins úr leik sem honum langar í. Eftir að hafa skoðað leikinn vel og kynnt sér hann, verð ég að segja að þetta virkar snilldarleikur og nú get ég ekki beðið eftir að fá að prófa hann. Það góða samt er það að við getum bæði spilað hann í einu :) Hann í makkanum og ég í pc. Þetta er netleikur, heitir í rauninni World Of WarCraft... WOW er stytting ;) Við erum nýkomin með þráðlaust net og nú bíður maður eftir að Hive fari í gang. Ó já, við ákvöðum að skipta um þjónustu...!
Helgin verður annars mjög lame, ég er að vinna close föstudag, laugardag og sunnudag. Jobbi auðvitað að vinna líka, vinnuvikan hans hálfnuð. Jæja nú ætla ég að hætta og reyna að sofna aftur. Tókst að sofa í klukkutíma, vaknaði og ákvað að athuga peningamálin ;) híhí góða nótt, ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera :)

Nikita @ 4:47 AM.


Comments: Post a Comment



Erna Ásta heiti ég. Léttrugluð en skemmtileg að sögn. Tuttugu og eins árs stúlkumær - fer að verða 22. Bý með kærastanum í Teigunum. Vinn sem vaktstjóri með skemmtilegu fólki á pizzustað. Á tvo ketti - Birta & Máni. Á líka hund - Neró. Á allt of mikið af tölvuleikjum. Er líka í skóla. Á Opel Corsu rauðan. Dálítið frek á köflum ;)



MYNDIR:
Fyrsta partýið í nýju íbúðinni!!

Áramótin 2004/2005!!

Neró, Máni & Birta

Heimasíðan hans Neró

Kærastinn: Jobbi
Íshokkígellan: Sigga F
Skautaskvísan: Sigga B
Turtildúfurnar: Helga & Gulli
Bumbubúinn litli: ?
Djammarinn: María Barbara
Ástralíufarinn: Jóhanna
Elsta vinkonan: Þóra
Litla Systir: Alda Björk
Teiknarinn: Ásta María
Fyrrverandi bekkjabróðir: Jón Gestur
Vinur kærastans: Palli
Drottningin: Kristín Vala


Ýmsar Síður
Skemmtileg Umræðuefni: Hugi.is
Styttir sér stundir: Leikir
Sæt lítil dýr: Neopets
Vefpóstur: Hotmail
Domino's Pizza: Starfsmannafélagið Pítsus
Blöggsíða: blogger
Bakgrunnar : de.lin*

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com