Ótrúlega er erfitt að koma sér á lappir þegar sumir mega sofa lengur. Jobbi kom heim um 8 leytið í morgun eftir vinnu. Mín ætlaði að vera dugleg og fara á lappir þá, en það var allt of freistandi að kúra aðeins lengur. Vaknaði síðan 9:21, dröslaði mér fram úr og tók mig til. Hvað beið mín þegar ég kom inn í stofu? Máni litli óþægagemlingurinn hafði migið á koddann sem lá í sófanum! Algjör asni! Þannig að mín þurfti að þrífa koddann, þrífa sófann og skamma köttinn í einum grænum því ég átti líka eftir að finna til nesti! Arrgg, Máni er svo óþægur að það er ótrúlegt! Alltaf að príla út um allt, og henda öllu niður. Hann er samt svo sætur, þið fáið mynd af honum að sjá í kvöld þegar ég set myndir á síðuna!